Gististaðir í nágrenninu

Gististaðir í nágrenni Landnámsseturs

 

Tölur í svigum tákna fjarlægð frá Landnámssetrinu.

 

 

 

Farfuglaheimilið í Borgarnesi  (275 m)

Borgarbraut 9 - 11

Sími 695 3366

Netfang borgarnes@hostel.is

 

Farfuglaheimilið í Borgarnesi er staðsett í gömlu bæjarskrifstofunum og hefur húsnæðið verið endurbætt og hýsir nú notalegan gististað þar sem áhersla er lögð á rólegt umhverfi og góða aðstöðu. Farfuglaheimilið er í gamla miðbænum, skammt frá Skallagrímsgarði og sundlauginni í Borgarnesi. 

Landnámssetur Íslands er í um tveggja mínútna göngufæri frá farfuglaheimilinu.

ATH VETRARTILBOÐ TIL LEIKHÚSGESTA LANDNÁMSSETURSINS

UPPLÝSINGAR Í LANDNÁMSSETRINU Í SÍMA 437 1600 

 

 

Borgarnes B&B  (300 m)

Skúlagata 21

Sími 434 1566 / 842 5866

Netfang borgarnesbb@internet.is

 

Borgarnes Bed & Breakfast er gistiheimili frábærlega staðsett við sjávarsíðuna í vesturbæ Borgarness.
Gistiheimilið hefur upp á að bjóða fjögur tveggja manna rúmgóð, hrein og björt herbergi með sjónvarpi, uppábúnum rúmum, ókeypis aðgang að þráðlausu neti, tveimur sameiginlegum baðherbergjum með sturtu og morgunmat. Hægt er að fá lánuð barnarúm og dýnur fyrir yngstu gestina.
Í sameiginlegri aðstöðu er borðtölva. Vel útbúinn eldunaraðstaða er á hæðinni með öllum helstu nauðsynjum.

Borgarnes B&B er staðsett  í einnar mínútu göngufæri frá ströndinni í  Englendingavík en hún er mikilvægur hluti af verslunarsögu Borgarness og þar eru nokkur af elstu húsum bæjarins. 

Landnámssetur Íslands og Safnahúsið í Borgarnesi eru í um fimm mínútna göngufjarlægð.

ATH VETRARTILBOÐ TIL LEIKHÚSGESTA LANDNÁMSSETURSINS

UPPLÝSINGAR Í LANDNÁMSSETRINU Í SÍMA 437 1600  

 

 

Bjarg - bændagisting í Borgarnesi (2,0 km)

Sími 437 1925 / 864 1325

Netfang bjarg@simnet.is

 

Bjarg er gamall bóndabær í Borgarnesi, þar hafa gömlu útihúsin verið innréttuð sem gistihús. Gistingin er í séríbúð fyrir 4 með eldunaraðstöðu og baði og einnig í íbúð með 3 herbergjum, 1 x 2ja manna og 2 x 4ra manna, með sameiginlegri eldunaraðstöðu og baði.

 

 

Hótel Hamar (5,5 km)

Sími 433 6600

Netfang hamar@icehotels.is

 

Hótel Hamar er nýtt og þægilegt hótel á rólegum stað í þjóðleið rétt utan við Borgarnes. Hér er hægt að njóta kyrrðar í sveitinni, en öll þjónusta er þó innan seilingar. Útsýnið er stórbrotið og veitingastaður hótelsins hefur getið sér gott orð fyrir frábæran mat og faglega þjónustu. Hótelið er rekið af hjónunum Unni Halldórsdóttur og Hirti Árnasyni sem bjóða gesti velkomna að sumri sem vetri.

ATH VETRARTILBOÐ TIL LEIKHÚSGESTA LANDNÁMSSETURSINS

UPPLÝSINGAR Á HÓTEL HAMRI Í SÍMA 433 6600 


 

Hvíti bærinn á Hamri (5,5 km)

Sími 437 2000 / 862 2655

Netfang hvitibaerinn@hvitibaerinn.is

 

Hvíti bærinn er veitinga og gistiheimili þar sem boðið er uppá svefnpokagistingu, rúm eða uppbúið rúm. Einnig er í boði morgunmatur, léttur hádegismatseðill, kvöldmatseðill og ýmsar tegundir af bakkelsi. Húsið hefur að bjóða 18 pláss í gistingu, þar eru sjö herbergi ýmist með tveim eða fjórum rúmum.

Hvíti bærinn stendur við þjóðveg nr. 1 og er umlukinn 18 holu golfvelli sem rekinn er af Golfklúbbi Borgarness.